Rauðkál er algjörlega ómissandi með jólamatnum. Það eru til margar mismunandi
uppskriftir af rauðkáli. Sumir vilja bara þurrkað rauðkál og sjóða það sjálfir.
Þannig var það gert heima hjá mér á aðfangadag en það fór mest allur dagurinn í að sjóða það. Þá er það látið liggja í vatni í nokkra klst og svo soðið í vatni, edik, sykri og
smjöri við vægan hita í 5-6 tíma.
Þetta er algjör herramannsmatur og var eina rauðkálið sem kom til greina að borða
hjá mér áður en að ég fór að læra kokkinn.
Svo eru aðrir sem að vilja ekki sjá neitt annað en dósarauðkál og allt annað er rusl
fyrir þeim.
En hérna kemur uppskriftin mín sem er búin að þróast hjá mér síðustu 14 árin. Það
er algjört smekksatriði hvað fólk vill sjóða kálið mikið en mér finnst gott að hafa nett
bit í því, ef ekki þá er bara að sjóða það meira.
Heimalagað rauðkál
Fyrir u.þ.b 12 manns
1 haus rauðkál
1 stk grænt epli
200 gr sykur
150 ml borðedik
100 ml solberjasaft
Kryddpoki( kaffísía)
1 stk kanillstöng
2 stk negull
8 einiber
2 lárviðarlauf
Börkur af einni appelsínu.
Grisja og garn
Fjarlægið kjarnan úr rauðkálinu og skerið það niður í þunnar ræmur. Skrælið og skerið eplið í teninga. Setjið kryddin og appelsínubörkinn í grisju eða kaffikvörn virkar líka og bindið fyrir.
Setjið allt saman í pott og stillið eldavélina á miðlungshita. Suðan kemur rólega upp og ágætt er að hræra reglulega á meðan. Þegar suðan kemur upp er gott að lækka aðeins niður hitann og láta að malla í klukkustund, lengur ef þér finnst það meiga vera mýkra. Kælið rauðkálið í safanum og sigtið þegar það hefur kólnað.
-Eyþór



