Graflax og sósa

Graflax er ómissandi hlutur af jólunum hjá mörgum. Ég held að á flest öllum heimilum sé borðaður graflax einhvertíman yfir föstuna.

Það eru til margar mismunandi uppskriftir af graflax og misgóðar. En allar innihalda þær sykur, salt og þurrkað dill.  Svona hef ég verið að taka hann undanfarin ár:

1 laxaflak

250 gr púðursykur

250 gr gróft salt

½  msk dill

½ msk kóríanderfræ

½ msk fennekellfræ

½  msk dillfræ

½  msk sinnepsfræ  

½  staup af íslensku brennivíni eða vodka (má sleppa)

Blandið sykrinum og saltinu saman í skál. Stráið 1/3 af saltinu á bakka og leggið laxaflakið ofan á það. Hellið restinni af salt og sykurblöndunni yfir laxaflakið og nuddið vel inn í laxinn. Stráið þurrkryddunum jafnt yfir allt laxaflakið. Skvettið víninu jafnt yfir allt flakið, hellið 1 staupi í ykkur og setjið flakið inn á kælir og látið standa í 16 tíma.

Snúið flakinu við og látið það standa í aðra 16 tíma.

Takið flakið af bakkanum og pakkið því vel inn, gott er t.d. að pakka því í plastfilmu og setja það svo í  þéttan poka.

Graflax geymist ágætilega inn á frysti en best er að sleppa að frysta hann og borða hann sem fyrst en hann þolir létt 7 dag í kæli vel innpakkaður.

Graflaxsósa

Hvað er graflax án graflaxssósu? Já og ristaðs brauðs. Þetta tvennt er algjörlega ómissandi þegar á að gæða sér á graflax.

Eitt er mjög gott að hafa í huga, þegar löguð er graflaxssósa ,er að hún batnar með aldrinum. Það er hún er betri ef að hún stendur í viku – mánuð í kæli í vel lokuðu íláti.

Þessa sósu sem að ég var að laga núna ætla ég að borða á Aðfangadag.

200 gr Majónes

80 gr Dijon sinnep  

80 gr púðursykur  

1 msk þurrkað dill

Setjið allt hráefni saman í hrærivélarskál og vinnið saman í ca. 4 mínútur. Eða þar til að sykurinn er allur búinn að leysast upp.

Þeir sem eru ekki með hrærivél við hendina geta hent öllu hráefninu saman í skál og pískað það svo saman, það er ekkert verra.

Geymið í kæli yfir nótt og snæðið svo með laxinum góða.

-Eyþór

About these ads

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s