Kexkaka Milljónamæringsins

Þetta kex er ekkert venjulega gott. Enda er þetta kexkakan sem Útrásarvíkingurinn dýfir ofan í koníakið sitt eftir langan vinnudag, á leið heim í einkaþotunni sinni.

Hún á ættir sínar að rekja í skoska “shortbread”, sem er einföld smjörkexkaka bökuð í hringlaga form og svo skorin í þríhyrninga.  Einhver sagði mér eitt sinn að þetta hefði verið besta leiðin til að nýta smjörið fyrir veturinn, sel það ekki dýrara.

Millonaires Shortbread, eins og hún heitir á frumálinu, er meira lík sælgætisstykki, frekar en köku og þekkja örruglega flestir þessa köku undir nafninu “Twix”.  Hún er sett saman úr þremur lögum, stökkum smjörkökubotn, þykkri karamellu og mjúkum súkkulaðitopp.  Uppskriftinn er frekar einföld en krefst smá þolinmæðis.

Kexkaka Milljónamæringsins

175 gr smjör

50 gr sykur

1 tsk vanilludropar

200 gr hveiti

1/4 tsk salt

Hitið ofninn í 170c. Settu smjörið og sykurinn í hrærivél og þeyttu þar til loftkennt og ljóst.  Bættu við vanilludropum og þeyttu saman við.  Við það bætirðu svo hveitinu og saltinu við, þar til allt er vel blandað saman.

Settu smjörpappír á bökunarplötu, helst með hliðum.  Ég nota svona rammaform sem ég eignaðist í sumar, hringlaga springform gengur líka upp, sem og einnig fást alls kyns bökunarbakkar í dag.

Þrýstið deiginu niður og sléttið yfirborðið með spaða.  Bakið í ca 20 mín og látið kólna meðan þið lagið karamelluna.

Karamella, Dulce de Leche

1 dós niðursoðin sætmjólk

1 msk gott sjávarsalt s.s Maldon

Ég notaði niðursoðna sætmjólk, það er einfaldara og hægt að byrja á henni langt á undan.  Mína fékk ég í Kosti, en hægt er að fá hana í flestum sælkerabúðum sem sérhæfa sig í asískum vörum.  Dósin er sett í pott og fyllið yfir með vatni.  Látið suðuna koma upp og lækkið svo niður um helming þannig að vatnið rétt bárast.  Látið sjóða í ca 3klst og ekki er vitlaust að snúa dósinni við reglulega á meðan suðu stendur.

Takið dósinni úr vatninu og leyfið að standa úti á borði í svona 20 mín áður en opnuð er, annars er líka hægt bara að setja hana inn í ísskáp yfir nótt, ef ekki á að nota strax.  Opnið dósina og tæmið innihaldið í skál, sem þolir örbylgjuofn, ef ekki er örbylgjuofn við hendina má velgja á henni í potti.

Hitið aðeins á karamellunni, svo hún sé létt flótandi og saltið, blandið saman við og hellið yfir kexbotnin.

Leyfið að kólna alveg.

Súkkulaði Ganache

200 gr gott dökkt súkkulaði, saxað (Green & Blacks 70% er í miklu uppáhaldi hjá mér)

50 gr smjör, skorið í teninga

Bræðið súkkulaðið og smjörið í skál í örbylgjuofni, passið bara að hafa ekki ofninn á hæstu stillingu, fyrir mig hefur það gefið best að vera með miðlungsstyrk á ofninum.

 

Blandið saman með sleikju þar til súkkulaðið og smjörið hefur blandast saman vel og hellið yfir karamelluna.  Leyfið þessu að kólna inn í ísskáp.

Takið út úr ísskápnum og skerið í stykkinn í stærð að eigin vild.

Ekki ólíklegt að þessi endi með jólapakkanum í ár :)

Best er svo að klippa niður smjörpappír í lengjur og pakka með stykkjunum niður í box og geyma inn í ísskáp eða frystir, en þar geymast þær upp í 3 mánuði, ef ekkert loft kemst að.

Verði ykkur að góðu :)

-Kjartan

About these ads

6 thoughts on “Kexkaka Milljónamæringsins

  1. Pingback: Sæt Kartöflukaramellukrömbla | Heimalagað

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s