Eplasalat (Waldorf salat)

Eplasalat er algjörlega klassískt meðlæti með öllum jólamat. Það passer vel með reyktum mat, villibráð já og kalkún. Ég tel sjálfan mig vera nokkuð fróðan um eplasalat og það að skera epli.

Þar sem að ég hef séð um að laga eplasalat fyrir alla þá veitingastaði sem að ég hef unnið á síðan að ég byrjaði að læra og reiknast mér til að þetta séu ca 140 – 170 kassar af eplum sem að ég hef skorið síðustu 14 jólahlaðborð  og í hverjum kassa eru ca 80 epli. Ég varð að deila þessu með ykkur(“,)

Eins og með allt annað er hægt að gera eplasalat á marga vegu, sumir nota bara rjóma, aðrir nota bara sýrðan rjóma og svo eru enn aðrir sem að blanda rauðrófum út í salatið líka

 Eplasalat

Fyrir ca 4-6 manns

140 gr sýrður rjómi

140 gr léttmajónes 

50 gr flórsykur

2  msk Grand Mariner

3 stk græn epli

4  stk sellerístilkar

Vínber og ristaðar valhnetur til skreytingar

Hendið öllu nema eplunum og selleríinu í skál og pískið vel.

Skrælið og skerið eplin í fallega teninga, Þvoið selleríið og skerið það niður í skífur. Setjið eplin og selleríið út í lögin og blandið vel saman.

Setjið í huggulega skál og skreytið með valhnetunum og vínberjunum, ekki spara vínberin.

-Eyþór

About these ads

2 thoughts on “Eplasalat (Waldorf salat)

  1. Mitt er reyndar enn einfaldara og inniheldur epli – kínakál – sýrður rjómi – majones – sítrónusafi – sykur – vínber. Er mjög ferskt og gott.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s