The Fat Duck í Bray, Englandi

Nú í byrjun febrúar skelltum við okkur félagarnir til London, í smá veitingahúsaleiðangur og svona líka til að fullnægja hinni ástríðunni okkar, enska boltanum.  Þar sem við erum stuðningsmenn tveggja sigursælustu liða Englands, sættust við um að kíkja á leik Arsenal og Blackburn Rovers.

Leikurinn endaði 7-1 fyrir heimamönnum og var ekki leiðinlegt að fá að sjá goðið Tierre Henry skora lokamarið.

Meðal þeirra staða sem við snæddum á var The Fat Duck í Bray, sem 40 er mín lestarferð frá vestur af London.  Staðurinn er með 3 stjörnur í Michelin bókinni og var valin besti veitingastaður í heimi tvö ár í röð á San Pellegrino Top 50 listanum.

Í dag situr hann í 5 sæti, en áhrifa hans má gæta víða í matreiðsluheiminum í dag.  Eigandinn er Heston Blumenthal, sem er sjálflærður kokkur og mikið matreiðslunörd.  Hann nálgast mat á mjög skemtilegan hátt og vinnur mikið með að fæa gestinn til að nota öll skilningsvitin þegar það snæðir hjá honum.  Hann hefur unnið náið með fræðimönnum í háskólum víða um heim, ilmvatnssérfræðingum, sálfræðingum og læknum til að skilja betur hvernig við skynjum matinn sem við borðum.  Allt er þetta gert til þess að við náum að njóta matarins á en betri hátt og jafnvel skilja betur samsetningu bragðs og áferðar.  Einnig er líka vottur á húmor í matreiðslunni sem gerir upplifuna enn skemmtilegri.

Við áttum pantað borð fyrir tvo í hádegismat og höfðum pantað borðið okkar með 3ja mánaða fyrirvara.  Að fá borðapöntun á svona frægu og vinsælum stað getur verið soldið snúið, þar sem þeir taka aðeins pantanir 3 mánuði fram í tíman( þeir eru ávallt fullbókuð) og þú þarft að skrifa undir samning ásamt þess að gefa upp kreditkortanúmerið þitt, til þess að tryggja þér pöntuna.  Sem þýðir ef þú mætir ekki myndir þú verða 150 pundum fátækari. Slaginu 12:00 vorum við mætir í Bray, sem er fallegt lítið þorp á köldum en heiðskírum degi, tilbúnir í ævintýrið sem var framundan.

Rauðrófumarengs (í raun er þetta hreinn rauðrófusafi sem er búið að þurrka) með piparótarkremi með kampavíninu

Það var vel tekið á móti okkur og vísað til borðs.  Á The Fat Duck er aðeins boðið upp á einn matseðill, bæði hádegi og kvölds, sem samanstendur af 12 réttum, ásamt nokkrum litlum aukaréttum.  Við pöntuðu okkur kampavínsglas af kampavínsvagninum og létum vínþjóninn um að koma okkur á óvart með vín dagsins.  Að því loknu komu réttirnir í góðum takti næstu 4 klst.

Fyrsti réttur, ef réttur skyldi kalla, er bragðlaukahreinsir.  Val um Camapri orange, Gin og Tonic eða Vodka og lime froða sem er böðuð í fljótandi köfnunarefni og borðuð strax.  Hreinsar öll óhreinindi af tungunni og gerir hana klára í komandi átök.

Grófkornasinnepsís með rauðkáls gaspazio, skemmtilegar andstæður, sterkur og kaldur ís og kálið með smá piparkeim og ísköld

Gönguferð um skóginn.  Kjúklingalifrafrauð með akurhænugeli og humarkremi, stökkt brauð með jarðsveppum og radísum og í litlu filmuboxunum ofan á mosanum voru litlar filmur sem brögðuðust eins og mold og mosi, þjóninn hellti svo volgu vatni yfir mosann og með smá hjálp frá þurrís og ilmolíu angaði allt borðið af skóg.

Sniglagrauturinn.  Hafrar, smjörsósa, steinselja og hvítlaukur og fennikel þunnt skorið.

Steikt andalifur með krabbakjarnsýrópi, rabbabaramauki, krabbakexi og þurrkuðum þara.

Þessi réttur slær náttúruega öll met.  Falska skjaldbökusúpa Brjálaða Hattarans úr Lísu í Undralandi.  Gullúrið breytist á augabragði í falska skjaldbökusúpu, sem er í raun bragðmikið kálfasoð og er svo bandað saman við harðsoðið egg, sem er í raun hreðka og rófa og kálfakinn.

Eyþór að komast í stemninguna fyrir næsta rétt eða Hljómar Hafsins, inn í skelinni er lítill Ipod sem spilar hljóma hafsins, marr í sandi, hafgolu, mávaköll og brim að falla að landi, þjóninn bað okkur vinsamlegast að hafa þetta í eyrunum á meðan við borðuðum næsta rétt.

Hljómar Hafsins.  Ætur sandur, sjávarjurtir og þari, makríll, lúða og túnfiskur.

Lakkríshjúpaður lax með ætilþistlum, vanillukremi og greipaldinbelgjum

Grísasíða með vetrarkáli og jarðsveppum

Dádýr og rófur, speltrisotto og kálfabris

Heitt og kalt te.  Það sést vel á myndinni skilin.  Sérstakt að fá kaldann og heitann vökva á sama tíma upp í sig

Epla og rjómaostatart með brómberjasorbet og rósum

Svartarskógarterta með kirsch líkjörsís.  Einnig ákvað þjónnin að spreya smá kirshlíkjör yfir allt borðið líka.

Einn af sérrétum Hestons, egg og beikonísinn.  Borinn fram með karamelluðu ristuðu brioche brauði og sykruðu beikoni.

Viskígúmmísmakk.  Fjórir skotar og einn Kani.  Alveg magnað.

Espresso og bland í poka

Þarna mátti finna kókosmjölspíputóbak, Eplakökukaramellu sem mátti borða í bréfinu, loftkúlusúkkulaði með mandarínukjarna og hjartadrottninguspil með jarðaberjafyllingu( því miður var hún étinn áður enn mynd náðist af henni).

Hvað getur maður sagt eftir svona máltið?  Þetta er klárlega ein mesta upplifun sem við félagarnir höfum upplifað á veitingahúsi.  Hvergi sleginn feiltónn og samsetningarnar og hugmyndarflugið ótrúlegt.  Þetta er kannski ekki matur sem maður dreymir um að borða aftur en upplifunin er þess virði að prófa.  Eftir matinn fengum við skoðunarferð um eldhúsið og aðstöðuna og kemur á óvart hvað hún er lítll, miðað við umfangið.

Stefán Cosser, Íslendingur sem hefur unnið hjá Hestoni í tilraunaeldhúsinu hans síðustu ár, sýndi okkur aðstöðuna og er ótrúlegt að sjá þennan tækjakost og græjum sem þeir hafa yfir að ráða til að láta villtustu draumana sýna rætast.  Eftir skoðunarferðina var haldið á The Crowns sem 500 ára gamall pöbb sem er í eigu Hestons.  Skemmtilegur og kósý gamaldagspöbb með arineld og kaldan bjór.  Þessi hádegisverður verður seint toppaður.

4 thoughts on “The Fat Duck í Bray, Englandi

    • Matseðilinn var á 180 pund. Smakkseðill á víni var svo 120 pund plús kaffi og eitt kampavínsglas, þannig þetta var ca 350 pund á mann með tipsi og öllu.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s