Blautt og Sveitt Ostaköku-Brownie að hætti Katrínar Sys

Nú eru páskarnir á næsta leyti og það er sjaldgæft að maðu heyri að fólk ætli í átak eftir páskaátið.  Kannski vegna þess við erum ekki með eins fastmótaða siði með páskamatinn, nema náttúrulega með lambið og jú páskaeggið.  Þessi uppskrift sameinaðar tvær af mínum uppaháldskökum, New York ostaköku og súkkulaði brownie.

Nema hvað ég þarf alltaf að bæta extra karamellu í allt sem ég geri þessa dagana og smá auka pistasíur, en það er bara svo að ég geti kallað hana sveitta.  Þessi er farinn að vera staðalbúnaður í nestiskörfunni fyrir Þjóðahátiðana í Eyjum hjá fjölskyldunni og má ég þakka systur minni Katrínu fyrir að kynna mér fyrir henni.  Katrín lilla sys hefur síðustu ár verið að læra til flugs en verið nettur laumubakari í frítíma sínum og veldur mér aldrei vonbrigðum með.  Vonandi að við sjáum hana stíga út úr skápnum og taka við sinni sönnu köllun í lífinu.

Blaut og Sveitt Ostaköku-Brownie að hætti Katrínu

100 gr smjör
120 gr dökkt súkkulaði, saxað
120 gr sykur
2 stk egg
80 gr hveiti
1 msk kakó
1/4 tsk salt
1 tsk vanilludropar
100 gr dökkt og/eða mjólkursúkkulaði, saxað í grófa bita

Ostakökumix

200 gr rjómaostur við stofuhita
1 stk eggjarauða
80 gr sykur
1/2 tsk vanilludropar

100 gr dulce de leche

100 gr pistasíur, saxaðar gróft

Sníðið smjörpappírsörk svo hún passi í skúffuform ( ég nota 20cmx25cm form) og forhitið ofninn í 180c.

Setjið smjör og 120 gr af súkkulaði í pott og bræðið við mjög lágan hita, hrærið á meðan þar til blandan er orðin skínandi og slétt.

Takið af hitanum og blandið 120 gr af sykrinum við, ásamt eggjunum, einu í einu.  Bætið við hveitinu, kakóinu, saltinu, vanilludropnum og

súkkulaðibitunm og blandið vel saman.

Hellið í formið og sléttið úr með spaða.

Þeyttið saman rjómaost, eggjarauðu, sykur og vanilludropa þar til mjúkt og vel blandað saman.

Doppið rjómaostablöndunni hér og þar yfir súkkulaðideigið og rótið aðeins til með skeið, passið bara að blanda ekki of vel saman við súkkulaðideigið.

Stráið pistasíunum yfir og bakið í ca 30-40 mín.

Passið bara ekki að ofbaka deigið, það er allt í lagi að það sé pínu blaut enþá, þegar pinna er stungið í gegnum það eftir þennan tíma.

Meðan kakan er en volg hellið dulce de leche yfir og leyfið að kólna.

Berið fram með þeyttum rjóma eða ís, annars finnst mér hún best ein og sér á sunnudegi í Eyjum með mjólkurglasi.

-Kjartan

About these ads

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s