Páskalambið


Lambalæri er eitthvað sem að flestir Íslendingar elska og er gjarnan borðað á páskunum. Þetta læri þarf nokkra daga í undirbúningi. Þannig að það er um að gera að henda sér út í búð og ná sér í ferskt eða frosið lambalæri og skella sér í marineringar gírinn.

Marinering

AB mjólkur- og kryddmarinerað lambalæri

1 stk lambalæri

4 stk hvítlauksgeirar

2 msk fennel fræ

2 msk kóriander fræ

2 msk Cummin fræ (Ekki Kúmen!!)

1 tsk chili duft

2 msk reykt paprika

2 msk maldonsalt

½ líter Ab mjólk

Skerið hvítlauksgeirana í tvennt og stingið nokkur göt á lærið með jöfnu millibili og setjið hvítlaukin í þau. Ristið kryddin á þurri pönnu eða í potti, byrjið á heilu fræjunum – hálf ristið þau og bætið svo duftinu út í. Blandið kryddunum ásamt saltinu út í ab mjólkina og smyrjið svo lærið vel upp úr því.

Setjið lærið inn á kæli og látið standa í minnst 2 sólahringa – mest í 4. Gott er að setja það á bökunargrind með plötu undir svo að lærið liggi ekki í vökvanum.

Eldunin á lærinu er svo þægileg – setjið lærið í ofnskúffu í 160 gráðu heitan ofninn í 2 ½ tíma takið lærið út og kryddið með maldonsalti ef að þurfa þykir .

Með þessu er hægt að hafa alls konar mismunandi meðlæti en ég mæli alla vega með því að þið hafið jógúrtdressingu.

Jógúrt dressing

2 dollur af hreinni jógúrt

1 stk agúrka

1 stk lime

2 msk fínt rifið engifer

½ hvítlauksgeiri fínt rifinn

Maldonsalt

Rífið gúrkuna með grófu rifjarni,

rifið börkinn af lime-inu yfir gúrkuna með microplane járni. Bætið engiferinu og hvítlauknum út ásamt jógúrtinni og kristið í lokinn safann úr liminu. Blandið öllu saman og smakkið til með maldonsalti.

Þette er algjör snilldardressing sem er góð með fiski og kjöti. Og er gríðarlega fljótleg í lögun.

Annað sem að ég bauð upp á með lærinu voru ofnbakaðir sætkartöflubátar með smá maple sýrópi, ferskir tómatar sem að mamma kom með að norðan frá Hveravöllum, en þau gera sennilega eina af bestu tómötum landsins. Melónu- og lárperusalat, gamla góða soðna spergilkálið og naan brauð.

Þetta var stórgóð máltið og dugði lærið og meðlætið fyrir 6 fullorðna og 1 lítinn stubb. Maður hefði átt að gera naanbrauðið sjálfur á útigrillinu en það vannst ekki tími til þess í þetta skiptið.

-Eyþór

About these ads

One thought on “Páskalambið

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s