Eyþór var lærlingur á Fiðlaranum og fékk sveinsprófið frá Hótel- og Matvælaskólanum í Kópavogi árið 2001. Árið 2002 starfaði Eyþór á hinum margrómuðu veitingastöðum Ensemble og Kong Hans Kælder í Kaupmannahöfn. Þá flutti hann sig um set til Sigga Hall á Óðinsvéum og var þar fram til ársins 2008, en frá 2003 – 2008 starfaði hann sem yfirkokkur. 2008 – 2009 var hann yfirkokkur á Ó restaurant. Eyþór hóf störf á Nauthól í janúar 2010 eða frá opnun staðarins. Eyþór hefur verið í kokkalandsliðinu frá árinu 2004 og var fyrirliði þess frá 2009 til 2011.
Kjartan lærði til kokks á Hótel Loftleiðum og útskrifaðist úr Hótel-og Matvælaskólanum árið 2000. Árið 2000 hóf hann störf á Hótel Holti og flutti sig um set ári seinna til Luxembourg til Reastaurant Lea Linster og vann undir handleiðslu Hákon Márs Örvarssonar (Bocuse D’or, Brons 2001) og Agnar Sverrisonar (Texture, London). Við heimkomu starfaði hann meðal annars á Vox og Sigga Hall. Árunum 2006-2009 starfaði hann í Noregi og Svíþjóð og var yfirkokkur á Pio Country Club í Halmstad í Svíþjóð. Síðustu ár hefur hann svo unnið á Dill Restaurant í Norræna Húsinu og Nauthól.